Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

9 stelpur frá Suðurnesjum í U16 ára landsliði
Þriðjudagur 14. ágúst 2018 kl. 10:11

9 stelpur frá Suðurnesjum í U16 ára landsliði

Níu stelpur frá Suðurnesjum héldu út til Svartfjallalands í morgun þar sem þær munu leika á Evrópumóti FIBA dagana 16.-25. ágúst. Þær eru hluti af U16 ára landsliði stúlkna í körfubolta en í heildina eru það 12 stelpur sem valdar voru í liðið.

Þetta er 6. og síðasta yngra landslið Íslands sem tekur þátt á EM í sumar. Liðið ferðast í dag og æfir og kemur sér fyrir á morgun áður en fyrsti leikur hefst á fimmtudaginn.

Public deli
Public deli

Stelpurnar leika í riðli með fimm þjóðum, Bretlandi, Grikklandi, Makedóníu, Svíþjóð og heimastúlkum frá Svartfjallalandi. Eftir keppni í riðlinum verður leikið um öll sæti keppninnar í úrslitakeppni. Alls eru 47 af 51 evrópulöndum innan FIBA sem taka þátt í U16 keppni stúlkna í ár.

Allir leikir á EM yngri landsliða eru í beinni útsendingu á YouTube-rás FIBA og einnig er lifandi tölfræði frá öllum leikjum þannig að mjög auðveld er að fylgjast með leikjum ÍSLANDS á EM yngri liða.

Hér er heimasíða keppninnar með beinum útsendingum og lifandi tölfræði:
http://www.fiba.basketball/europe/u16bwomen/2018


ÍSLAND · U16 ára lið stúlkna

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Anna Margrét Lucic Jónsdóttir · Grindavík

Bríet Ófeigsdóttir · Breiðablik

Edda Karlsdóttir · Keflavík

Eva María Davíðsdóttir · Keflavík

Gígja Marín Þorsteinsdóttir · Hamar

Helga Sóley Heiðarsdóttir · Hamar

Hjördís Lilja Traustadóttir · Keflavík

Sara Lind Kristjánsdóttir · Keflavík

Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir · Grindavík

Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir · Grindavík

Þórunn Friðriksdóttir · Njarðvík

Una Rós Unnarsdóttir · Grindavík

 

Árni Þór Hilmarsson · þjálfari

Hallgrímur Brynjólfsson · aðstoðarþjálfari

Anna Urban · sjúkraþjálfari

Sara Pálmadóttir · fararstjóri

Aðalsteinn Hjartarson · FIBA dómari Íslands á mótinu