Fréttir

 „Reykjanesið er lykilsvæði þegar kemur að efnahagsuppbyggingu þjóðarinnar - segir fjármálaráðherra
Föstudagur 3. desember 2021 kl. 10:14

„Reykjanesið er lykilsvæði þegar kemur að efnahagsuppbyggingu þjóðarinnar - segir fjármálaráðherra

Úrslitatillögur í samkeppnisútboði Kadeco kynntar

Kadeco kynnti í gær, fimmtudag, þrjár tillögur úr samkeppnisútboði um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll. Fundinum var stýrt af Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco, en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tók einnig til máls á fundinum.

„Við lögðum áherslu á að tillögurnar myndu hvetja til fjölbreytni í atvinnustarfsemi, bæði til að nýta ólíka kosti svæðisins sem best en líka til að dreifa eggjunum í fleiri körfur, ef svo má segja, og reyna þannig að minnka líkur á samdrætti þegar ein atvinnugrein verður fyrir skakkaföllum, verja þannig svæðið fyrir áföllum eins og kostur er,“ sagði Pálmi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Teymin þrjú sem eru leidd af Jacobs, Arup og KCAP hafa viðamikla reynslu af metnaðarfullum og stórum skipulags- og uppbyggingarverkefnum víðs vegar um heiminn, svo sem Hong Kong Zhuhai-Macau brúnni og stækkun Heathrow flugvallar.

 „Reykjanesið er lykilsvæði þegar kemur að efnahagsuppbyggingu þjóðarinnar. Á komandi áratugum verður stefnt að því að styrkja svæðið sem atvinnusvæði með því að laða að alþjóðleg fyrirtæki og fjárfesta. Með þróun og uppbyggingu fjölbreytts viðskiptaumhverfis mun Kadeco leitast við að tryggja efnahagslega seiglu svæðisins og stuðla að því að það verði alþjóðlega samkeppnishæft,“ sagði Bjarni Benediktsson.

Forvali var hleypt af stað í maí á þessu ári á útboðsvef Evrópska efnahagssvæðisins. Alls bárust umsóknir frá 25 alþjóðlegum teymum um að fá að taka þátt í samkeppninni. Niðurstaða úr samkeppninni verður kynnt síðar í desember eftir að matsnefnd skipuð fagaðilum hefur lokið úttekt á tillögunum þremur.          

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hefur það meginmarkmið að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll.

Fulltrúar frá sveitarfélögunum á Suðurnesjum fjölmenntu á kynninguna. 

Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.