Fréttir

WAB air verður PLAY - nýtt lággjaldaflugfélag
Þriðjudagur 5. nóvember 2019 kl. 14:21

WAB air verður PLAY - nýtt lággjaldaflugfélag

Nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag hefur hlotið nafnið PLAY en tilkynnt var um nafnið við hátíðlega athöfn í Perlunni í dag auk þess sem farið var yfir framtíðaráform félagsins.

Að baki PLAY stendur hópur fólks með víðtæka reynslu úr flugheiminum en margir starfsmenn PLAY hafa áður starfað hjá flugfélögum á borð við WOW air og Air Atlanta. Þá stendur til að ráða fjölda starfsmanna á næstu vikum bæði á skrifstofu félagsins og áhafnarmeðlimi. Forstjóri PLAY er Arnar Már Magnússon.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Flogið verður á Airbus A320 flugvélum sem leigðar verða til félagsins og taka um 200 farþega í sæti. Gert er ráð fyrir sex vélum í rekstri næsta sumar og að flotinn vaxi í tíu vélar innan þriggja ára. Fyrst um sinn verður flogið innan Evrópu en stefnt er að því að bæta við áfangastöðum í Norður Ameríku á komandi vormánuðum.

Sala flugmiða hefst í nóvember auk þess sem þúsund flugmiðar verða gefnir. Fólk er hvatt til þess að skrá sig á póstlista til þess að fá frekari upplýsingar. www.flyplay.com