Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Vogar leita lánsfjármögnunar upp á 250 milljónir króna vegna COVID-19
Þriðjudagur 28. apríl 2020 kl. 17:18

Vogar leita lánsfjármögnunar upp á 250 milljónir króna vegna COVID-19

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að leita eftir lánsfjármögnun fyrir allt að 250 milljónum króna. Bæjarráðið fundaði á mánudag um fjármál rekstur sveitarfélagsins í ljósi COVID-19 og ráðstafanir sem nauðsynlegt er að ráðast í vegna breyttra forsendna í rekstri sveitarfélagsins.

Leitað verði eftir útfærslum í lánsfjármögnunina, þar sem m.a. verði litið til lánskjara, uppgreiðslumöguleika sem og útfærslu á með hvaða hætti lánið verði hafið. Bæjarstjóra er falin nánari úrvinnsla málsins og að leggja niðurstöður fyrir næsta fund bæjarráðs, segir í afgreiðslu málsins

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Bæjarráð samþykkir jafnframt heimild til að auka yfirdráttarheimild í viðskiptabanka um allt að 15 m.kr. til að brúa fjárþörf sveitarsjóðs þar til niðurstaða er fengin í útfærslu lántökunnar. Þá samþykkir bæjarráð jafnframt að á næsta fundi bæjarráðs verði lögð fram drög að viðaukum við fjárhagsáætlun ársins 2020, þar sem jafnframt verður tekin ákvörðun um endurskoðun rekstrar- og fjárfestingaliða fjárhagsáætlunar 2020.

Magnús Kristjánsson ráðgjafi hjá KPMG fór á fundinum yfir lausafjárstöðu sveitarfélagsins ásamt því sem hann fór yfir nokkrar sviðsmyndir um hvers megi vænta á næstunni og í tengslum við þá óvissu sem uppi er um þessar mundir.