Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Vísbendingar um nýtt kvikuinnskot á Reykjanesi
Mynd sem sýnir staðsetningu kvikuinnskots á Reykjanesi. Fengin af vef Veðurstofu Íslands.
Fimmtudagur 2. apríl 2020 kl. 22:05

Vísbendingar um nýtt kvikuinnskot á Reykjanesi

Staðsetningin mun vestar en kvikuinnskotin í nágrenni Þorbjarnar

GPS mælingar ásamt nánari úrvinnslu og líkanreikningum á fyrirliggjandi gögnum, gefa nú vísbendingar um nýtt kvikuinnskot vestast á Reykjanesskaganum undir Rauðhólum og Sýrfelli. Þetta staðfesta gögn sem safnað hefur verið í samstarfi Jarðvísindastofnunar Háskólans, ÍSORs, HS-Orku og Veðurstofunnar eftir að virknin við Þorbjörn hófst. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

„Gögnin sem við höfum unnið úr gefa til kynna að kvikuinnskotið hafi átt sér stað frá því um miðjan febrúar og fram í fyrstu vikuna í mars. Þessi mynd skýrðist betur þegar við fengum gögn úr GPS mælingum Háskólans, sem ekki eru beintengdar okkar vöktunarkerfi og það gerir það að verkum að við greinum þetta ekki fyrr en nú,“ segir Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands á vef stofnunarinnar.

Public deli
Public deli

Líkan staðsetur kvikuinnskotið á um 8-13 km dýpi, sem er líklega við botn jarðskorpunnar á talsvert meira dýpi en kvikuinnskotin tvö við Þorbjörn.

„Þetta kvikuinnskot undir Sýrfelli er þriðja kvikuinnskotið sem við greinum á Reykjanesskaganum frá því um áramótin. Tilvist þessa kvikuinnskots styður ályktun Vísindaráðs Almannavarna frá því um daginn um að það sé nauðsynlegt að skoða virknina á Reykjanesskaganum heildstætt, en ekki einungis út frá staðbundinni virkni í kringum Svartsengi og Reykjanes“, segir Kristín. Hún ítrekar að það sé of snemmt á þessu stigi að draga neinar sterkar ályktanir og bendir á nauðsyn þess að skoða núverandi virkni í sögulegu samhengi við aðra þekkta atburði á Reykjanesskaganum

Jarðvísindamenn munu halda áfram að fylgjast náið með gangi mála og vinna frekar úr þeim gögnum sem safnast hafa.