Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Viðlagakassi: Hvað á að taka með?
Miðvikudagur 29. janúar 2020 kl. 11:53

Viðlagakassi: Hvað á að taka með?

Enn er óvissuástand vegna landriss við Þorbjörn. Þótt líklegast sé að ekkert gerist er gott að vera viðbúinn fyrir þetta "ef". Verkefnið 3 dagar hefur verið í gangi hjá Rauða krossinum í nokkur ár. Verkefninu er ætlað að undirbúa hvert og eitt heimili undir að vera sjálfu sér nægt í 3 daga ef hamfarir og neyðarástand dynur yfir. Hvert heimili á að vera með tilbúna heimilisáætlun og viðlagakassa sem sjá má hér fyrir neðan.

Með heitinu 3 dagar vill Rauði krossinn impra á mikilvægi þess að einstaklingar og fjölskyldur geti verið sjálfum sér nægar í 3 daga eigi sér stað rof á innviðum, s.s. vegir lokast, rafmagn fari af o.s.frv.

Public deli
Public deli

Rauði krossinn hefur verið með fræðslufundi um allt land, m.a. í grunnskóla, til þess að kynna verkefnið og kenna fólki hvernig eigi að undirbúa sig ef hamfarir verða.

Viðlagakassi

Viðlagakassi ætti að vera til staðar á hverju heimili, þ.e. kassi sem inniheldur þá hluti sem íbúar gætu þurft á að halda í kjölfar hamfara. Við vitum aldrei hvenær við gætum þurft að grípa til hans þegar náttúran gerir vart við sig svo best er að útbúa slíkan kassa strax í dag ef hann er ekki nú þegar til staðar. Athugið að geyma kassann þar sem öll fjölskyldan getur nálgast hann og gættu þess að hlutirnir í honum séu ekki útrunnir.

Hér að neðan er gátlisti yfir hluti sem mikilvægt er að hafa innan seilingar - annað hvort í viðlagakassanum eða á aðgengilegum stað.

Munið að margt er til á heimilum nú þegar og því er þetta oftar en ekki spurning um að taka þá til, setja í kassa og hafa á aðgengilegum stað.

Listi yfir mikilvæg símanúmer - Fjölskyldumeðlimir og viðbragðsaðilar, s.s. 112.
Kerti og eldspýtur - Ef rafmagn þrýtur er nauðsynlegt að geta tendrað ljós og kveikt upp í eldunargræjum.
Sterkt viðgerðarlímaband - Mjög gagnlegt í minni viðgerðir og skammtímareddingar .
Hreinlætisvörur - Tannbursta, bleyjur, sápu, dömubindi/túrtappa, svitalyktareyði o.s.frv.
Útvarp með langbylgju (upptrekt eða með rafhlöðum) - Þinn besti möguleiki á að fá upplýsingar um ástand ef sambandsleysi á sér stað.
Vasaljós með rafhlöðum
Reiðufé
Leikföng og spil - Nauðsynlegt fyrir börn jafnt sem fullorðna og fyrirtaks dægrastytting.
Vatn á flöskum eða brúsa - Hver einstaklingur notar allt að fjóra lítra á dag.
Teppi til að kúra saman í kuldanum - Muna að hafa nóg fyrir alla á heimilinu.
Matur með langt geymsluþol (dósamatur, pakkamatur, þurrmeti) - Svo er bara að borða hann í útilegum á sumrin og fylla aftur á með haustinu.
Vasahnífur eða fjölnota verkfæri - Nauðsynlegt í minniháttar viðgerðir og skítamix..

Annað sem er mikilvægt að hafa í huga:

Skyndihjálpartaska er alltaf nauðsynleg á hvert heimili. Hana má kaupa hjá Rauða krossinum.

Prímus og gaskút er nauðsynlegt að eiga - það er leiðinlegra að borða dósamatinn kaldan. Þá virkar gasgrill líka.

Slökkvitæki

Hafðu nóg eldsneyti á bílnum ef hættuástand skapast - þannig geturðu hlaðið síma og fylgst með fréttum í útvarpinu ef samband er til staðar.

Kynntu þér staðsetningu næstu fjöldahjálparstöðvar. HÉR má finna staðsetningar á landinu. 

Náðu í skyndihjálparappið á App Store eða Google Play. Þar er einnig kafli um neyðarvarnir.