Veita afslætti af gjöldum vegna leikskóla og frístundar í Suðurnesjabæ
Vegna aðstæðna á tímum COVID-19 hefur Suðurnesjabær tekið ákvörðun um að veita afslætti af gjöldum vegna leikskóla og frístundar með eftirfarandi hætti frá og með 16. mars sl.:
Foreldrar sem hafa tekið ákvörðum um að nýta ekki dvalartíma sinn á meðan að samgöngubann varir fá 100% afslátt af gjöldum.
Foreldrar sem nýta þjónustu greiða einungis fyrir þá þjónustu sem nýtt er.
Sé óskað eftir nánari upplýsingum er bent á viðkomandi stofnanir.
„Endurútreikningur gjalda mun taka tíma og biðjum við viðskiptavini um að sýna þolinmæði í ljósi aukins álags,“ segir í tilkynningu frá aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar.