Fréttir

Varúð! Glæpamávur á ferð
Mánudagur 6. maí 2019 kl. 09:56

Varúð! Glæpamávur á ferð

Lögreglumenn í almennu eftirliti í gærkvöldi veittu athygli mávs sem flaug fyrir ofan lögreglubifreið þeirra. Í fyrstu fannst þeim eins og að mávurinn væri með dýr í gogginum en þegar betur var aðgáð sáu þeir að um veski var að ræða. 
 
Lögreglan veitti mávinum eftirför og náðu honum skammt frá þar sem hann lenti til að kíkja á feng sinn. Í veskinu voru skilríki og var hægt að hafa samband við eigandann. En hann hafði séð mávinn fljúga á brott með veskið sitt. 
 
Eigandinn var himinlifandi með að endurheimta veskið en þessi sannkallaði glæpamávur er nú eftirlýstur hjá lögreglu, segir í færslu frá lögreglunni á fésbókinni.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024