Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Útveggir viðbyggingar Hópsskóla rísa
Föstudagur 15. janúar 2021 kl. 12:57

Útveggir viðbyggingar Hópsskóla rísa

Sem stendur er nú unnið að því að byggja áfanga 2 við Hópsskóla í Grindavík en um er að ræða 1.100 m2 byggingu á einni hæð auk þess verður kjallari undir hluta byggingar. Það er Grindin ehf. sem sér um framkvæmdina.  Í viðbyggingu verða m.a. fjórar heimastofur ásamt fjórum öðrum stofum fyrir textílmennt, myndmennt, heimilisfræði og smíði. Viðbyggingin mun tengjast núverandi skóla að austanverðu og byggjast til suðurs, í átt að Hópinu. Gert er ráð fyrir að taka áfangann í notkun í byrjun árs 2022, segir á vef Grindavíkurbæjar. Myndin var tekin á mánudag. VF-mynd: Hilmar Bragi

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024