Fréttir

Úttekt á þörf fyrir heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og í Suðurnesjabæ
Föstudagur 12. mars 2021 kl. 06:31

Úttekt á þörf fyrir heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og í Suðurnesjabæ

Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur móttekið svar heilbrigðisráðuneytisins við bókun 66. fundar bæjarráðs um heilbrigðisþjónustu í Suðurnesjabæ. Bæjarráð hefur óskað eftir fundi með heilbrigðisráðherra um málið. Jafnframt er formanni bæjarráðs og bæjarstjóra falið að funda með framkvæmdastjóra SSS um framkvæmd úttektar á þörf fyrir heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og í Suðurnesjabæ.

„Bæjarráð Suðurnesjabæjar beinir því til heilbrigðisráðuneytis að íbúar Suðurnesjabæjar fái notið heilbrigðisþjónustu í sínu sveitarfélagi. Á vegum ríkisins er engin heilbrigðisþjónusta rekin í Suðurnesjabæ, á meðan íbúar í öðrum sveitarfélögum landsins búa að því að geta notið heilbrigðisþjónustu í sínum sveitarfélögum,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá því í október á síðasta ári.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Bæjarráð bendir á að í þessu felst mismunun gagnvart íbúum Suðurnesjabæjar og hvetur heilbrigðisráðuneytið til þess að bæta hlut íbúa sveitarfélagsins að þessu leyti og beiti sér fyrir fjárheimildum í fjárlögum næsta árs í því skyni. Bæjarstjóra Suðurnesjabæjar var í október síðastliðnum falið að óska eftir að forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja mæti til fundar hjá bæjarráði Suðurnesjabæjar til að ræða málið.