Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

  • Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands fundaði í Grindavík í Íslandsheimsókn
    Frá heimsókn utanríkisráðherra Nýja-Sjálands í gær. Myndir af vef stjórnarráðsins.
  • Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands fundaði í Grindavík í Íslandsheimsókn
    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands
Miðvikudagur 24. apríl 2019 kl. 09:11

Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands fundaði í Grindavík í Íslandsheimsókn

Tvíhliða samskipti, mannréttindamál og öryggismál voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, sem fram fór í Grindavík í gær.
 
Íslandsheimsókn Peters, sem jafnframt gegnir embætti varaforsætisráðherra Nýja-Sjálands, er liður í ferð hans um Norðurlönd en Nýja-Sjáland opnaði nýverið sendiráð í Stokkhólmi sem annast fyrirsvar gagnvart öllum norrænu ríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem nýsjálenskur utanríkisráðherra sækir Ísland heim en ríkin tóku upp stjórnmálasamband árið 1988.
 
Þeir Peters og Guðlaugur Þór Þórðarson ræddu á fundi sínum sameiginleg hagsmunamál ríkjanna og samvinnu, meðal annars á sviði mannréttinda en Nýja-Sjáland studdi framboð Íslands til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í fyrra. Þá voru jafnframt til umræðu á fundinum öryggismál, hryðjuverkaógnin, alþjóðaviðskipti, málefni hafsins og baráttan gegn loftslagsbreytingum svo fátt eitt sé nefnt.
 
 „Þótt hálf jarðarkringlan skilji að Ísland og Nýja-Sjáland eiga þessi tvö ríki margt sameiginlegt. Landshagir beggja eru um margt svipaðir og samfélögin grundvallast bæði á gildum á borð við lýðræði, mannréttindi og jafnrétti kynjanna. Það kemur því vart á óvart að á fundi okkar Peters hafi komið fram gagnkvæmur vilji til að auka samskipti ríkjanna og þróa áfram en nýsjálensk stjórnvöld horfa í vaxandi mæli til Norðurlandanna, bæði sem líkt þenkjandi vinaþjóða og vegna norðurslóða,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
 
Utanríkisráðherrarnir skoðuðu fjölbreytta náttúru Reykjanesskaga og kynntu sér atvinnulíf á svæðinu, meðal annars sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í Grindavík og HS Orku í Svartsengi. 

 
Frá heimsókn ráðherranna til HS Orku í Svartsengi.
 

Frá heimsókn í sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í Grindavík.
 
Public deli
Public deli