Fréttir

Upplýsingamiðstöð fyrir gosgesti í Kvikunni
Föstudagur 26. mars 2021 kl. 18:12

Upplýsingamiðstöð fyrir gosgesti í Kvikunni

Opnuð hefur verið upplýsingamiðstöð í Kvikunni á vegum Grindavíkurbæjar. Stafsfólk bæjarins og Safe Travel verður í upplýsingamiðstöðinni.

Vegna sóttvarna verður ekki opið fyrir heimsóknir heldur tekið við fyrirspurnum í síma 420-1190 og á [email protected] milli kl 10:00-17:00 alla daga, utan opnunartíma verða birtar upplýsingar á vef Grindavíkurbæjar og Safe Travel ef þörf krefur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Upplýsingar verða veittar á íslensku, ensku og pólsku. Jafnframt er fólki bent á að kynna sér nýjustu upplýsingar um veður og aðstæður á gosstöðvunum á vef Safe Travel.

Um helgina verður hægt að nota salerni í íþróttamiðstöðinni í Grindavík en hún verður opin frá kl. 9:00 - 16:00 bæði á laugardag og sunnudag. Eftir helgi verður hægt að nýta salernisaðstöðuna meðan opið er frá klukkan 9:00 - 21:00.