Fréttir

Ungar í lögreglufylgd á Reykjanesbraut
Mánudagur 30. september 2019 kl. 09:26

Ungar í lögreglufylgd á Reykjanesbraut

Þau geta verið margvísleg málin sem rekur á fjörur lögreglu eins og eftirfarandi ber með sér. Vegfarandi tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni sem leið að álft með þrjá unga væri að spássera á Reykjanesbraut og stefndi til sjávar. Var þetta talið geta valdið slysi bæði á mannverum og dýrum. Lögregla stöðvaði því umferð á meðan fuglarnir trítluðu yfir brautina og gekk það allt að óskum.

Þá var tilkynnt um tvær landnámshænur sem ekki hefðu skilað sér heim á tilsettum tíma. Þar sem engin tilkynning hafði borist til lögreglu um hænur í óskilum var lítið hægt að aðhafast í málinu annað en að sjá hvort flökkufuglarnir skiluðu sér heim sem þeir hafa vonandi gert.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024