Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Úða vökva yfir sprengiefnið
Það má sjá blá blikkandi ljós víða um Njarðvík nú í kvöld þar sem götum er lokað til öryggis. VF-mynd: Hilmar Bragi
Föstudagur 1. nóvember 2019 kl. 18:57

Úða vökva yfir sprengiefnið

„Staðan er þannig að verið er að úða sérstökum vökva yfir sprengiefnið sem gerir það óvirkt fyrir flutning. Aðgerðin er tímafrek og ekki er víst hvenær aðgerðum verður lokið og íbúar innan hættusvæðis geta snúið aftur heim.

En við viljum vekja athygli á því að það er engin hætta á ferðum og biðjum við fólk um að halda ró sinni og virða þessar öryggisráðstafanir sem búið er að gera.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Við biðjum fólk um að vera jákvætt og hjálpa okkur bara með þetta. Eftir að búið verður að tryggja sprengiefnið verður það flutt burt og eytt og má búast við að íbúar verði varir við sprengingar er það verður gert,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum nú á sjöunda tímanum í kvöld.