Fréttir

Tekist á um hækkun á jólagjöfum til starfsmanna Reykjanesbæjar
Frá fundi í Bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 18. nóvember 2020 kl. 10:57

Tekist á um hækkun á jólagjöfum til starfsmanna Reykjanesbæjar

Tekist var á um jólagjafir til starfsmanna Reykjanesbæjar á bæjarstjórnarfundi í gær. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti á fundi bæjarráðs í síðustu viku tvö þúsund króna hækkkun á gjafabréfi í Betri bæ en minnihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks leggjast alfarið á móti hækkuninni. 

Minnihluti bæjarstjórnar leggur til að þessi 20% hækkun á gjafabréfinu til starfsmanna Reykjanesbæjar renni til þeirra sem eiga í erfiðleikum með að ná endum saman. Í bókun meirihlutans kemur fram að starfsfólk bæjarins hafi unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður og heildarhækkunin á gjöfinni sé 5% en auk gjafabréf fær hver starfsmaður árskort í sund sem er metið á 28 þúsund krónur. „Það er sorglegt að verða vitni að lýðskrumi sem þessu og bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks til háborinnar skammar,“ segir í bókun meirihlutans.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hér má sjá bókanir í í þessu máli frá fundinum 17. nóvember:

„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ leggjast alfarið á móti 20% hækkun jólagjafar til starfsfólks bæjarins eins og meirihlutinn samþykkti í bæjarráði.

Í ljósi þess að 1 af hverjum rúmlega 4 einstaklingum á atvinnumarkaði í sveitarfélaginu eru án atvinnu og fjárhagslegra erfiðleika í heild hjá sveitarfélaginu, teljum við þessa hækkun taktlausa.

Jólagjöfin er í formi gjafabréfs til að nýta hjá fyrirtækjum og þjónustuaðilum í „Betri bæ“ hér í Reykjanesbæ. Við leggjum til að þessi 20% hækkun á gjafabréfum renni til þeirra sem eiga í erfiðleikum með að ná endum saman. Velferðarsviðið fái þessa upphæð til að úthluta til þeirra sem mest þurfa á gjafabréfinu að halda.“

Margrét Sanders, Baldur Guðmundsson og Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Sjálfstæðisflokki.

Lögð var fram eftirfarandi tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

„Við leggjum til að sú áætlaða 20% hækkun á jólagjöfum til starfsmanna í formi gjafabréfa renni til þeirra sem eiga í erfiðleikum með að ná endum saman. Velferðarsviðið fái þessa upphæð til að úthluta til þeirra sem mest þurfa á gjafabréfinu að halda.“

Margrét Sanders, Baldur Guðmundsson og Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Sjálfstæðisflokki.

Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (M) og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Bæjarfulltrúi Miðflokksins styður þessa framkomnu tillögu. Með henni er verið að koma til móts við fjölda fólks sem reiða sig á fjárhagsaðstoð bæjararins. Þessi tillaga er mikið réttlætismál fyrir það fólk.“

Margrét Þórarinsdóttir (M).

Tillagan er felld með 6 atkvæðum meirihlutans gegn 5 atkvæðum minnihluta.

Til máls tók Friðjón Einarsson (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Meirihlutinn hafnar framkominni tillögu enda er um að ræða 5% hækkun á heildarvirði jólagjafar til starfsfólks. Starfsfólk bæjarins hefur unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður og alls ekki boðlegt að tengja jólagjafir til starfsmanna við stöðu velferðarmála. Lögð hefur verið til veruleg hækkun til málaflokksins og væri frekari stuðningur við velferðarmál sjálfstæð ákvörðun. Það er sorglegt að verða vitni að lýðskrumi sem þessu og bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks til háborinnar skammar.“

Díana Hilmarsdóttir (B), Friðjón Einarsson (S), Guðbrandur Einarsson (Y), Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Jóhann Friðrik Friðriksson (B) og Styrmir Gauti Fjeldsted (S).