Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Takmörkuð þjónusta í ráðhúsi Reykjanesbæjar
Laugardagur 14. mars 2020 kl. 11:29

Takmörkuð þjónusta í ráðhúsi Reykjanesbæjar

Reykjanesbær hefur gripið til ráðstafana til að bregðast við COVID-19 faraldrinum með lokun bókasafns og kaffihúss og skertri starfsemi í þjónustuveri. Þá verður starfsdagur kennara í grunnskólum á mánudaginn 16. mars í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum.

Í tilkynningu Reykjanesbæjar segir: „Til að minnka útbreiðslu á veirunni hefur verið ákveðið að loka bókasafni Reykjanesbæjar í óákveðinn tíma frá og með mánudeginum 16 mars . Kaffihúsinu í ráðhúsinu verður lokað og lágmarks þjónusta verður veitt í þjónustuverinu.  Íbúar og aðrir viðskiptavinir sem eiga erindi í þjónustuver Reykjanesbæjar eru hvattir til að senda tölvupóst á [email protected], spjalla við starfsfólk í netspjalli  eða hringja í síma 421-6700.  Starfsfólk ráðhússins mun áfram leggja áherslu á að veita góða þjónustu en biðjum viðskiptavini um að sýna þolinmæði í ljósi aukins álags.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Skrifstofa velferðarsviðs hefur ákveðið að þjónusta flest erindi í gegnum síma eða tölvu, þeir einstaklingar sem eiga tíma hjá félagsráðgjafa halda þeim tímum og mun ráðgjafi hringja í þá. Þeir sem þurfa að ná sambandi við starfsmenn velferðarsviðs geta hringt í þjónustuver Ráðhússins eða sent tölvupóst. Vakin er athygli á að netfangaskrá starfsmanna er á heimasíðu Reykjanesbæjar..

Hægt er að sækja um alla þjónustu rafrænt í gegnum þjónustugáttina og rafræna miðla á Mitt Reykjanes inn á heimasíðu bæjarins. Tilkynningar til barnaverndar eiga að berast í síma 112.

Duus hús og Hljómahöllin verða áfram með sínar vanalegu opnanir en lágmarka fjölda gesta hverju sinni.“