Fréttir

Sumarnámskeið í Keili í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
mánudaginn 15. júlí 2019 kl. 13:01

Sumarnámskeið í Keili í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Keilir hefur sett saman röð námskeiða í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Námskeiðin eru liður í aðgerðum stjórnvalda sem miða að uppbyggingu á Suðurnesjunum í kjölfar falls WOW Air í vor.

Á meðal námskeiða eru útvist, jöklaferðir, tölvuleikjagerð og flugtengd störf.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Námskeiðin fara fram í júlí og ágúst. Þau eru án endurgjalds og henta bæði ungu fólki sem og fullorðnum einstaklingum.

Grunnnámskeið í fjallamennsku og jöklaferðum: 23. júlí - 1. ágúst

Útivist og umhverfi - Námskeið fyrir ungt fólk (13 - 15 ára): 6. - 21. ágúst

Tölvuleikjagerð - Námskeið fyrir ungt fólk (13 - 15 ára): 12. - 16. ágúst

Flugtengd störf - Námskeið fyrir ungt fólk (13 - 16 ára): 29. - 31. júlí

Grunnnámskeið um einka- og atvinnuflugnám fyrir fullorðna: 22. - 26. júlí

Í framhaldi af fundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og mningarmálaráðherra með íbúum Suðurnesja í apríl um atvinnu- og fræðslumál á svæðinu var stofnaður starfshópur um málið innan mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Hlutverk hans var að móta aðgerðaáætlun er byggði á sýn heimamanna og stjórnvalda og vinna henni brautargengis ásamt því að vakta, greina og miðla upplýsingum um stöðu og þróun mála, með sérstakri áherslu á greiningu á aðstæðum þeirra hópa sem verst stæðu.

Á heimasíðunni má nálgast upplýsingar um þau námskeið sem Keilir hefur sett saman.