Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Starfshópur helstu hagaðila um eldstöðvar í Fagradalsfjalli tekur til starfa
Frá eldgosinu í Fagradalsfjalli. VF-mynd: Jón Hilmarsson
Mánudagur 19. apríl 2021 kl. 18:15

Starfshópur helstu hagaðila um eldstöðvar í Fagradalsfjalli tekur til starfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur kynnt ríkisstjórn áform um að settur yrði á fót starfshópur helstu hagaðila sem falið verði að koma með tillögur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum til skemmri og lengri tíma. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

„Á meðan gosið stendur verður áframhaldandi aðsókn að svæðinu en eftir að því lýkur má gera ráð fyrir að það verði vinsæll áfangastaður ferðamanna til frambúðar og að þetta svæði verði fjölsóttur ferðamannastaður. Öll þessi uppbygging þarf að þola álag ferðamanna allan ársins hring og þarf að skoða hvernig tryggja megi öryggi ferðamanna og upplýsingamiðlun til þeirra auk þess sem huga þarf að aðgangsstýringu,“ segir Þórdís Kolbrún í tilkynningu á vefnum.

Nú þegar hefur verið gripið til bráðaaðgerða á svæðinu af hálfu Grindavíkurbæjar auk þess sem veitt hefur verið fé af fjárheimild Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til uppbyggingar á svæðinu. Mikilvægt er hins vegar að hugað verði að fyrirkomulagi á svæðinu til langs tíma en jafnframt að gripið verði til nauðsynlegra bráðaaðgerða og skýrari mynd fengin á aðkomu ólíkra aðila til frambúðar. Svæðið sem um ræðir er allt í eigu einkaaðila og réttur og hagsmunir þeirra miklir en á sama hátt eru hagsmunir samfélagsins miklir, bæði hvað varðar aðgang heimamanna að svæðinu og uppbyggingu ferðaþjónustu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í hópnum munu eiga sæti fulltrúar landeigendafélaganna tveggja á svæðinu, Grindavíkurbæjar, Áfangastaðastofu Reykjaness, Umhverfisstofnunar, Veðurstofunnar, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Suðurnesjum auk Skarphéðins Berg Steinarssonar, ferðamálastjóra, sem stýrir starfi hópsins.

Hópnum er ætlað að skila frumtillögum sínum til starfshóps til verndar innviðum vegna eldsumbrota á Reykjanesi, sem stýrt er af ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins, eigi siðar en 30. apríl nk. Lokatillögur hópsins skulu liggja fyrir eigi síðar en 31. ágúst nk.