Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Snjór og klaki hreinsaður af körfuboltavellinum
Fimmtudagur 19. mars 2020 kl. 13:01

Snjór og klaki hreinsaður af körfuboltavellinum

„Samvinna og samkennd einkennir samfélagið okkar í dag nú sem endranær. Guðmundur Helgi Albertsson fékk Younes Boumihdi og félaga í fyrirtækinu Younes ehf. með sér í lið við að hreinsa snjó og klaka af körfuboltavellinum við Njarðvíkurskóla,“ segir á vef Njarðvíkurskóla.

Stefnan er að klára verkið í dag. Nemendur í skólanum geta því í framhaldi nýtt sér völlinn í leik og útivist í skólanum. Njarðvíkurskóli þakkar öllum þeim sem komu að þessari vinnu kærlega fyrir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024