Fréttir

Slasaðir sóttir í flutningaskip undan Vatnsleysuströnd
Mánudagur 17. febrúar 2020 kl. 16:18

Slasaðir sóttir í flutningaskip undan Vatnsleysuströnd

Áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sótti tvo slasaða skipverja í erlent flutningaskip á laugardag sem statt var skammt norður af Keilisnesi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð vegna slyss í vélarúmi flutningaskipsins og var ákveðið að senda þyrlu til að hægt væri að koma mönnunum undir læknishendur. Vegna tungumálaörðugleika var túlkur fenginn til að aðstoða áhöfnina áður en þyrlan tók á loft til að fara yfir hvernig staðið yrði að hífingum.

Þegar þyrlan kom á vettvang var sigmanni, lækni, tveimur hífingarbörum og búnaði var slakað um borð í skipið. Þyrlan fór frá skipinu meðan áhöfnin athafnaði sig um borð og hlúði að skipverjunum. Þeim var komið fyrir á grjónadýnu í hífingarbörum og undirbúnir til flutnings.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Að því búnu fór þyrlulæknirinn aftur um borð í þyrluna og svo voru skipverjarnir tveir hífðir um borð. Sigmaðurinn fór síðastur frá flutningaskipinu.

Meðfylgjandi myndband gefur góða innsýn í störf þyrlusveitarinnar og þar má sjá nokkur brot frá frá útkallinu frá sjónarhorni sigmannsins.

Skipverjarnir voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi.