Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Sjávarakademían sett á laggirnar
Föstudagur 5. júní 2020 kl. 11:13

Sjávarakademían sett á laggirnar

„Mjög jákvæð áhrif og tækifæri fyrir Suðurnesin,“ segir Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri Fisktækniskólans

„Ef einhvern tíma var þörf þá er núna nauðsyn að efla áhuga fyrir haftengdum greinum. Aldrei áður í sögunni hefur jafn mikið verið rætt um fæðuöryggi hérlendis eins og undanfarna mánuði og tækifærin í þeim efnum í hafinu við Ísland eru mikil. Þetta samstarf milli Sjávarklasans og Fisktækniskólans mun hafa mjög jákvæð áhrif fyrir Suðurnesin,“ segir Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri Fisktækniskólans en í vikunni var Sjávarakademía Sjávarklasans sett á laggirnar í nánu samstarfi við Fisktækniskóla Íslands. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra opnaði Sjávarakademíuna formlega í Húsi sjávarklasans að viðstöddum gestum.

Frumkvöðlastarfsemi

Public deli
Public deli

Í Sjávarakademíunni mun nemendum gefast kostur á að kynnast frumkvöðlastarfsemi sem tengist hafinu, læra um sjálfbærni og hvernig bæta megi umhverfi og afurðir hafsins.  Aðalkennslan fer fram í Húsi sjávarklasans en einnig fer kennsla fram í haftengdum fyrirtækjum og stofnunum á Suðurnesjum.

Sjávarakademían býður upp á nám sem stendur yfir í eina önn og hefst námið í haust. Í sumar verður sérstakt 4 vikna námskeið Sjávarakademíunnar þar sem lögð er áhersla á nýsköpun, sjálfbærni og tækifæri í bláa hagkerfinu. Þetta námskeið er ætlað fólki sem hefur áhuga á umhverfismálum og öllu er við kemur hafinu.

Sumarnámskeið

Á sumarnámskeiði Sjávarakademíunnar munu þátttakendur hitta frumkvöðla og kynnast því hvernig þau komu hugmynd í framkvæmd, læra að stofna fyrirtæki, kynnast fjölmörgum tækifærum til að nýta betur sjávarauðlindir, læra um sjálfbærni og umhverfismál.

Námskeiðið er stutt af Menntamálaráðuneytinu og er námskeiðsgjaldi því stillt mjög í hóf. Námskeiðsgjald er 3.000 krónur.

Tækifæri Íslands

„Við viljum vekja áhuga fólks á þeim tækifærum sem Ísland hefur upp á að bjóða í tengslum við hafið. Við þurfum meira af fólki sem mun í framtíðinni vinna við eða skapa störf tengd umhverfismálum á hafinu, markaðssetningu íslenskra vara, sjálfbærni, útflutningi tækniþekkingar, þörungaeldi og sjávarlíftækni svo eitthvað sé nefnt,“ segir Þór Sigfússon stofnandi Sjávarklasans. „Ísland á að vera í forystu á þessu sviði á heimsvísu og Sjávarakademían er einn vettvangur sem nýtist í þeim tilgangi.“

Urmull nýrra tækifæra

„Nú viljum við breikka aðeins sviðið, benda þátttakendum á urmul nýrra tækifæra sem tengjast hafinu en nýta um leið þá miklu reynslu sem til staðar er hjá nýsköpunarfyrirtækjum sem þátttakendur munu kynnast,“ segir Berta Daníelsdóttir framkvæmdastjóri Sjávarklasans og kennari á námskeiðinu.

Nánari upplýsingar um Sjávarakademíuna og sumarnámskeið má finna á www.sjávarklasinn.is og hjá Söru Björk Guðmundsdóttir verkefnisstjóra námsins á [email protected].

Þetta samstarf milli Sjávarklasans og Fisktækniskólans mun hafa mjög jákvæð áhrif fyrir Suðurnesin,“ segir Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri Fisktækniskólans.