Fréttir

Selja flotbryggju í Vogum
Flotbryggjan sem bæjaryfirvöld hafa samþykkt að selja.
Fimmtudagur 13. maí 2021 kl. 07:35

Selja flotbryggju í Vogum

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt, með fjórum atkvæðum gegn tveimur og fulltrúi L-listans situr hjá, að selja flotbryggjuna, sbr. afgreiðslu bæjarráðs.

D-listinn í bæjarstjórn leggur til að málinu verði frestað og fengið verði kostnaðarmat frá fleiri aðilum. Einnig verði skoðað hver kostnaður yrði við að dýpka höfnina við viðlegukant. Tillagan er felld með fjórum atkvæðum gegn þremur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Björn Sæbjörnsson, bæjarfulltrúi D-listans, bókaði við málið: „Mér finnst það mjög dapurt ef það á að selja héðan þessa bryggju og það sem henni fylgir núna þegar loks hillir undir lok Covid og ferðaþjónustan getur farið að blómstra. Að láta frá okkur fyrsta vaxtabroddin sem þar er. Ef þessi útgerð hefði gengið vel hefðu væntanlega komið fleiri sem styður svo við tjaldstæði, verslun og vonandi vaxandi þjónustu við ferðamenn hér í framtíðinni.“