Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Selja Dráttarbraut Keflavíkur og vilja hugmyndir um uppbyggingu í Grófinni
Séð yfir Grófina. Lóð gömlu Dráttarbrautar Keflavíkur hefur verið lituð í gulum lit. Lóðin og byggingar á henni eru nú til sölu.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 19. nóvember 2021 kl. 06:42

Selja Dráttarbraut Keflavíkur og vilja hugmyndir um uppbyggingu í Grófinni

Reykjanesbær hefur auglýst til sölu byggingar og lóðarréttindi að Grófinni 2 í Keflavík. Um er að ræða gömlu Dráttarbraut Keflavíkur. Um er að ræða 1.512 fermetra atvinnuhúsnæði sem er víkjandi samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagi, en í því er heimild til að byggja alls 9.185 fermetra á 8.165 fermetra reit reit. Gert er ráð fyrir niðurrifi núverandi bygginga á lóðinni. Í auglýsingu frá Reykjanesbæ segir að það myndi leiða til inneignar gatnagerðargjalda uppá tæpar 28 milljónir króna.

Reykjanesbær óskar er eftir tilboðum í eignina auk hugmynda um uppbyggingu á reitnum. Bæjaryfirvöld segja æskilegt að endurskoða núverandi deiliskipulag útfrá breyttum forsendum um nýtingu svæðisins við endurskoðun aðalskipulags. Má þar meðal annars nefna breytingar á fyrirhugaðri stærð smábátahafnar og flokkun svæðisins. Þá segir að sérstaklega verður horft til samspils áætlana við uppbyggingu umliggjandi svæða eins og þær koma fram í fyrirliggjandi vinnslutillögu endurskoðunar aðalskipulags Reykjanesbæjar 2020–2035.

Public deli
Public deli

Reykjanesbær hefur á undanförnum árum verið eitt helsta vaxtarsvæði landsins. Samhliða þeim vexti hefur bærinn og þarf að þróast í takti við hin miklu umsvif sem fylgja þessari grósku, hvort heldur er vegna umsvifa á Keflavíkurflugvelli eða öðrum tækifærum í öflugu efnahags- og mannlífi svæðisins.

Í grónari hverfum bæjarins eru mikil tækifæri til þróunar reita sem hafa verið bundnir við annan tilgang en nútímaþarfir samfélagsins bæjarins kalla á. Verður þróun þeirra gerð að sérstökum verkefnum, þar sem bærinn mun ýmist selja eignir og lóðaréttindi til einkaaðila eða leita með öðrum hætti eftir samstarfsaðilum um þróun svæða.

Á vef Reykjanesbæjar segir að gott dæmi um þetta er reiturinn sem er auglýstur núna, Grófin 2. Þar var á sínum tíma dráttarbraut og svæði tengt fiskverkun og sjávarútvegi í nágrenni. Í fyllingu tímans hefur umhverfið svo þróast í aðrar áttir, léttur iðnaður í Grófinni og Duushúsin orðin menningarhús. Ef vel tekst til getur þessi reitur orðið lykill að breyttri ásýnd svæðisins og verið hluti af því að tengja Bergið og smábátahöfnina betur við Hafnargötu og Duus torfuna. Hugmyndin er að þróun þessara reita/svæða verði í samstarfi við fjárfesta og leiði þau í átt til þeirra þarfa sem samfélagið hefur um framtíðarnýtingu þeirra, segir á vef Reykjanesbæjar.