Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Samkomubann framlengt til að hefta útbreiðslu Covid-19
Föstudagur 3. apríl 2020 kl. 13:31

Samkomubann framlengt til að hefta útbreiðslu Covid-19

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur fjölgað hratt. „Nú skiptir öllu máli að við höldum áfram að standa saman sem einn maður, fylgja fyrirmælum okkar besta fagfólks og koma þannig í veg fyrir að álag á heilbrigðiskerfið fari yfir þolmörkin“ segir heilbrigðisráðherra.

Eins og fram kemur í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra hafa margvíslegar aðgerðir, m.a. framangreindar takmarkanir skilað því að tekist hefur að hefta útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu. Til þessa hefur fjölgun smita ekki verið meiri en svo að hún helst í hendur við bjartsýnustu spár hvað það varðar samkvæmt spálíkani sérfræðinga þar að lútandi sem sjá má á vefnum Covid.hi.is. Aftur á móti hefur alvarlega veikum einstaklingum fjölgað jafnt og þétt, sem lýsir sér m.a. með miklu álagi á gjörgæsludeild Landspítalans. Ljóst er að frekari aukning á smiti í samfélaginu með fjölgun alvarlega veikra, getur skapað mikinn vanda innan heilbrigðiskerfisins og torveldað því að gegna hlutverki sínu eins og þörf krefur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Takmörkunum verði aflétt í áföngum

Engar breytingar verða á gildandi takmörkunum á samkomum og skólahaldi aðrar en framlengdur gildistími til 4. maí. Á tímabilinu verður undirbúin áætlun um hvernig best megi standa að því að aflétta gildandi takmörkunum í áföngum. Stefnt er að því að kynna þau áform fyrir lok þessa mánaðar.

Veittar undanþágur halda gildi

Undanþágur sem veittar hafa verið frá takmörkunum á samkomum og skólahaldi munu halda gildi sínu sem nemur framlengingu aðgerða, þ.e. til 4. maí næstkomandi. Áréttað er að undanþágur eru því aðeins veittar að mikið sé í húfi, þ.e. í þágu allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða til verndar lífi eða heilsu.