Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Samherji byggir 40 þús. tonna landeldi á laxi á Reykjanesi
Þriðjudagur 15. júní 2021 kl. 17:39

Samherji byggir 40 þús. tonna landeldi á laxi á Reykjanesi

45 milljarða kr. verkefni. Fjölmörg störf verða til á framkvæmdatímanum og á annað hundrað störf við landeldið þegar vinnsla á afurðum hefst.

Samherji fiskeldi ehf. hefur gert samninga við HS Orku um uppbyggingu laxeldis á landi í Auðlindagarðinum við Reykjanesvirkjun. Markmiðið með landeldinu er að framleiða heilnæma gæða vöru með lágu vistspori. Félagið hefur tryggt sér aðgang að sjó og raforku til að framleiða allt að 40 þúsund tonn af laxi á landi árlega auk þess sem nýttur verður ylsjór sem er affall frá kælingu Reykjanesvirkjunar. Þá hefur Samherji fiskeldi samið við landeigendur vegna uppbyggingarinnar.

Almennur kynningarfundur verður um verkefnið í Hljómahöllinni Reykjanesbæ 16. júní kl 14:00 og streymt verður frá fundinum á vefsvæði Hljómahallarinnar á eftirfarandi slóð  https://youtu.be/cnEi2HmS2yU

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Samherji fiskeldi áformar að byggja upp allt að 40.000 tonna landeldi á laxi í þremur áföngum á næstu 11 árum. Landeldisstöðin verður staðsett við Reykjanesvirkjun og mun samanstanda af seiðastöð, áframeldisstöð og frumvinnsluhúsi ásamt þjónustubyggingum. Heildarfjárfesting er áætluð ríflega 45 milljarðar króna en stjórn Samherja hefur ákveðið að leggja til fjármagn til fyrsta áfanga verkefnisins. Ráðgert er að leita til fleiri fjárfesta þegar kemur að frekari stækkun landeldisins. Landeldisáformin í Auðlindagarðinum teljast stór í samanburði við önnur landeldisverkefni sem nú eru í undirbúningi á alþjóðavísu. Fjölmörg störf verða til á framkvæmdatímanum og á annað hundrað störf við landeldið þegar vinnsla á afurðum hefst.

Undirbúningur fyrsta áfanga er hafinn

Vinna við matsferli, leyfismál og hönnun er hafin en ráðgert er að ljúka því ferli á næsta ári. Samkvæmt áætlunum Samherja fiskeldis mun seiðaeldi við fyrsta áfanga hefjast í upphafi árs 2023 og áframeldi og vinnsla á afurðum á árunum 2024 og 2025. Í fyrsta áfanga verður framleiðslan 10.000 tonn af laxi og áætluð fjárfesting upp á 17 milljarða króna. Í öðrum áfanga verður bætt við 10.000 tonnum og í þriðja áfanga 20.000 tonnum. Ef allt gengur að óskum verður landeldið í Auðlindagarðinum komið í full afköst á árinu 2032.

Samherji fiskeldi, sem er félag í samstæðu Samherja, er nú þegar með nokkur umsvif á Suðurnesjum en fyrirtækið rekur frumvinnsluhús og fullvinnslu í Sandgerði, eldisstöð á Stað við Grindavík og eldisstöð á Vatnsleysuströnd. Þar að auki er fyrirtækið með landeldi á laxi á Núpsmýri við Kópasker og seiðastöð á Núpum í Ölfusi.

HS Orka rekur í dag tvær jarðvarmavirkjanir, í Svartsengi og á Reykjanesi, auk einnar vatnsaflsvirkjunar á Brú í Tungufljóti í Biskupstungum. Í Auðlindagarðinum í kringum jarðvarmavirkjanir HS Orku hefur byggst upp einstakt samfélag fyrirtækja sem nýta affallsstrauma frá virkjununum í starfsemi sinni. Fyrirtækin í Auðlindagarðinum eru í dag ellefu talsins og verður landeldi Samherja fiskeldis það tólfta. Framkvæmdin við fyrirhugað eldi styður við markmið Auðlindagarðsins um nýtingu affallsstrauma frá jarðvarmavirkjunum sem í dag renna að hluta ónýttir til sjávar. Aðstæður í Auðlindagarðinum eru hagstæðar þegar kemur að aðgengi að raforku, jarðhita, ylsjó og jarðsjó.

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku:

„Með þessum samningi HS Orku við Samherja fiskeldi bætist enn eitt fyrirtækið við þann fjölbreytta rekstur sem nú þegar er innan Auðlindagarðsins. Við fögnum þessum áformum Samherja á iðnaðarlóðinni við Reykjanesvirkjun með þeim tilgangi að framleiða heilnæma gæða vöru með lágu vistspori. Hugmyndafræði Auðlindagarðsins er einmitt að ýta undir betri auðlindanýtingu. Í þessu verkefni verður notaður ylsjór frá Reykjanesvirkjun til að tryggja stöðugan kjöreldishita fyrir fiskinn. Loks er það gleðiefni að með þessum áformum munu umsvif á okkar starfssvæði aukast – hvort sem horft er til fjölgunar starfa í eldisstarfsemi innan sjálfs auðlindagarðsins eða í tengdum atvinnugreinum vítt og breitt um Suðurnesin“.

Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis:

„Stjórnendur og starfsfólk Samherja fiskeldis hafa unnið hörðum höndum að undirbúningi þessa verkefnis á Reykjanesi í tæpt ár. Það er stór áfangi hjá okkur að klára þessa samninga og geta hafist handa við uppbygginguna. Við höfum náð góðum árangri í fiskeldi á landi og þessi fjárfesting endurspeglar þá tiltrú sem við höfum á áframhaldandi vöxt þessarar greinar. Við erum spennt fyrir því að byggja upp á svæðinu og nýta okkur þann ávinning sem felst í nálægð við HS Orku og Reykjanesvirkjun. Á þessu svæði eru einhverjar bestu aðstæður til landeldis sem við höfum fundið. Nýting ylsjávar sem streymir frá orkuveri HS Orku er stór þáttur í að gera þessa uppbyggingu fýsilega. Ekki síst er hér um að ræða mjög umhverfisvæna framleiðslu sem markaðurinn er að kalla eftir.“

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja:

„Uppbyggingin laxeldis á landi innan Auðlindagarðsins byggir á þekkingu Samherja fiskeldis og HS Orku á afar ólíkum sviðum en þegar hún er lögð saman teljum við hagkvæmt að þróa umfangsmikið landeldi sem hljóta að teljast mikil tíðindi. Þá munu þessar fjárfestingar skapa tugi starfa í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum og auka útflutningstekjur Íslands umtalsvert. Stjórn Samherja hf hefur þegar samþykkt að leggja þessu landeldisverkefni til 7,5 milljarða króna til þess að tyggja uppbyggingu fyrsta fasa. Það sýnir að mínu mati þá tiltrú sem við höfum á því að þetta sé rétt leið til framtíðar matvælaframleiðslu og verðmætasköpunar. Á síðari stigum munum við leita til fleiri fjárfesta til að tryggja heildar uppbyggingu verkefnisins.“

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja og Tómas Már Sigurðsson forstjóri HS Orku handsala samstarfið. Hjá þeim standa Jón Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis og Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri stefnumótunar og auðlindagarðs HS Orku.