Fréttir

Rotaðist í viðskiptum við þakplötu
Þakjárn sem hafði fokið af byggingu í óveðrinu sl. föstudag. VF-mynd: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 19. febrúar 2020 kl. 10:09

Rotaðist í viðskiptum við þakplötu

Nokkrar tilkynningar um slys hafa borist lögreglunni á Suðurnesjum á síðustu dögum. Kona sem gekk á töskukerru í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hrasaði og slasaðist á hné. Hún var flutt með sjúkrabifreið til læknis.

Önnur kona sem var að tína spegilbrot upp af gólfi skarst illa á hendi og var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Karlmaður sem hélt ásamt öðrum á þakplötu sem fokið hafði í óveðrinu fyrir helgi varð fyrir því óhappi að vindhviða feykti honum til svo að hann datt og rotaðist. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á HSS til skoðunar.