Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Reykjanesbær mun ná lögbundnu 150% skuldaviðmiði fyrr
Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs og Jóhann F. Friðriksson, forseti bæjarstjórnar.
Þriðjudagur 4. desember 2018 kl. 22:35

Reykjanesbær mun ná lögbundnu 150% skuldaviðmiði fyrr

Nýr grunnskóli meðal stærstu verkefna í næstu fjárhagsáætlun

Reykjanesbær mun að öllum líkindum ná undir lögboðið 150% skuldaviðmið fyrr en upphaflega aðlögunaráætlun gerði ráð fyrir, að því er fram kom í máli Kjartans Más Kjartanssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem lauk nú undir kvöld. Kemur þar margt til, m.a. skilvirk fjárhagsstjórn, aðhald í rekstri, hagstæð ytri skilyrði, auknar tekjur og breyttar reglur um útreikning skuldaviðmiðs.

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2019 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2020-2022 voru samþykktar 10-0 á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem hófs síðdegis. Allir bæjarfulltrúar samþykktu nema Margrét Þórarinsdóttir, Miðflokki, sat hjá.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fjármál sveitarfélagsins hafa tekið miklum stakkaskiptum á síðustu misserum.

Helstu áherslur nokkurra málaflokka 2019:

  • Stærsta verkefnið á Fræðslusviði er bygging fyrsta áfanga nýs skóla í Innri Njarðvík. Framkvæmdir hefjast nú í desember og kennsla haustið 2020. Auk þess verður talsvert um framkvæmdir við stækkun grunn- og leikskóla á tímabilinu vegna fjölgunar íbúa.
  • Áfram verður aukið við stuðning við stækkandi hóp barna sem hafa íslensku sem annað tungumál.
  • Áhersla verður lögð á að bæta aðstöðu og fjölga úrræðum til að mæta margbreytilegum þörfum barna og verður Öspin, sérhæft námsúrræði fyrir börn, stækkuð.
  • Áfram verður unnið að því að efla gæði í frístundaheimilum og skoða mögulega samþættingu frístunda- og íþróttastarfs ásamt aukinni þjónustu utan starfstíma skóla.
  • Áfram verður unnið að því að hvetja til aukinnar þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi með sérstaka áherslu á börn af erlendum uppruna í samstarfi við Velferðarsvið. Unnið verður að heildarstefnumörkun í íþróttum og tómstundum í Reykjanesbæ. Þá verður unnið að undirbúningi við nýjan gervigrasvöll í sveitarfélaginu.

Innan Velferðarsviðs er gert ráð fyrir að hafin verði vinna við hönnun og undirbúning nýs hjúkrunarheimilis í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Auk þess verður lögð áhersla innleiðingu nýrra laga og lagabreytinga í velferðarþjónustu með áherslu á snemmtæka íhlutun og eflingu fagmenntunar og starfsþróunar á sviðinu. Einnig verður lögð áhersla á að efla og styðja við fjölmenningarsamfélagið Reykjanesbæ og stefnt að því að taka í notkun nýtt sértækt búsetuúrræði fyrir fatlaða og húsnæðislausnir fyrir jaðarhópa.

Umhverfissvið mun leggja áherslu á viðhald gatna og fasteigna auk þess sem gert er ráð fyrir verulegum fjármunum til viðhalds og uppbyggingu fráveitukerfis sveitarfélagsins. Umhverfissvið verður áfram opið fyrir áhugaverðum verkefnum í samtarfi við íbúa.

Í menningarmálum verður Ljósanótt haldin í 20. sinn á árinu og verður tímamótanna minnst með margvíslegum hætti. Aðrar hátíðir og sýningahald verða á sínum stað auk þess sem menningarstefna Reykjanesbæjar verður endurskoðuð.

Rafræn stjórnsýsla, með áherslu á bætt upplýsingastreymi og innri vef starfsmanna, verður ofarlega á lista auk þess sem lokið verður við jafnlaunavottun eins og lög og reglur gera ráð fyrir, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.