Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ragnheiður Elín verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020
Ragnheiður Elín Árnadóttir. Mynd af vef stjórnarráðsins.
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
föstudaginn 5. júlí 2019 kl. 10:35

Ragnheiður Elín verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020

Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020. Alls sóttu 45 um starfið en sjö drógu síðar umsóknir sínar til baka. Hlutverk verkefnastjóra er að vinna að undirbúningi hátíðarinnar í samráði við stjórn verkefnisins og Evrópsku kvikmyndaakademíuna.

Helstu verkefni sem eru framundan er að leiða saman samstarfsaðila, halda utan um samningagerð, afla styrkja, og vinna drög að styrktar- og kynningarstefnu verkefnisins. Það var mat stjórnar að Ragnheiður Elín uppfyllti best þær hlutlægu og huglægu kröfur sem settar voru fram í starfslýsingu. Verkefnastjóri vinnur samkvæmt fyrirliggjandi verkefna- og fjárhagsáætlun og ber ábyrgð gagnvart stjórn verkefnisins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ragnheiður Elín er með MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum og BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún er fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra og hefur fjölþætta reynslu af skipulagningu og stjórnun viðamikilla verkefna, bæði hér heima og erlendis. Hún þekkir vel til stjórnsýslu kvikmyndamála og málefna ferðaþjónustunnar sem fyrrverandi ráðherra. Hún hafði yfirumsjón með þátttöku Íslands í Heimssýningunni í Lissabon í starfi sínu hjá Útflutningsráði á sínum tíma og hefur frá því hún lét af störfum sem ráðherra sinnt ýmsum alþjóðatengdum verkefnum.

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin (EFA) verða veitt í Hörpu í desember 2020 og er húsið forsenda þess að hægt sé að halda viðburð sem þennan á Íslandi. Verkefnið er viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar en í stjórn þess eru: Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, sem jafnframt er formaður stjórnar fyrri hluta starfstímans er fulltrúi ráðuneytisins tekur við formennsku, Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Marta Guðrún Skúladóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Huld Ingimarsdóttir, skrifstofustjóri fjármála og rekstrar hjá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Sigurjóna Sverrisdóttir, tilvonandi framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík.

Hátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu. Hátíðin og hliðarviðburðir henni tengdir munu laða að sér fjölmarga erlenda gesti og er vonast til þess að hún stuðli að öflugri kynningu og markaðssetningu á Íslandi og Reykjavík sem áfangastað og tökustað fyrir kvikmyndir. Tímasetning hátíðarinnar hentar vel en desember er yfirleitt sá mánuður þar sem líklegt er að slíkir viðburðir hafi hvað jákvæðust áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf auk þess sem margvísleg mikilvæg tækifæri gefast til þess að vekja athygli á íslenskri menningu.

Fleiri verkefnastjórar verða ráðnir er nær dregur hátíðinni, segir á vef stjórnarráðs Íslands.