Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Rafmagnsstrætó í Reykjanesbæ
Sævar Baldursson, framkvæmdastjóri Bus4U og Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs við rafmagnsvagninn.
Þriðjudagur 28. janúar 2020 kl. 10:36

Rafmagnsstrætó í Reykjanesbæ

Bus4u Iceland, sem annast rekstur almenningssamgangna í Reykjanesbæ, er þessa dagana í tilraunaakstri með almenningsvagn sem er knúinn 100% með rafmagni og mun hann verða nýttur á nokkrum akstursleiðum næstu dagana.

„Þetta er klárlega framtíðin og verður horft til umhverfisvænni vagna hvort sem það verður rafmagn, vetni eða aðrir vistvænir orkugjafar á næstu árum,” segir Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar.

Public deli
Public deli

Bíllinn sem er af Mercedes Citaro gerð er fluttur inn fyrir tilstilli Öskju, sem er umboðsaðili Mercedes Bens á Íslandi, og tekur um 30 farþega í sæti. Drægni ökutækisins er um 185 km á hleðslu og kemur mjög vel út þar sem ökutækið er nánast hljóðlaust og hentar því vel fyrir akstur í íbúðahverfum.

Sævar Baldursson, framkvæmdastjóri Bus4u, segir að tíminn verði að leiða í ljós hvort farið verði í að fjárfesta í svona farartæki á næstunni en þessir bílar eru töluvert dýrari en farartæki sem eru knúin hefðbundnum orkugjöfum.