Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Ræða samstarf eða yfirtöku  Reykjanesbæjar á rekstri og eignum Þroskahjálpar á Suðurnesjum
Mánudagur 14. september 2020 kl. 06:59

Ræða samstarf eða yfirtöku Reykjanesbæjar á rekstri og eignum Þroskahjálpar á Suðurnesjum

Ásmundur Friðriksson, formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum, hefur sent bæjarráði Reykjanesbæjar erindi þar sem óskað er eftir fundi um framtíð Þroskahjálpar á Suðurnesjum og Dósasels. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

„Ekki hefur verið hægt að halda aðalfund síðasta árs vegna þess að ekki tekst að manna stjórn Þroskahjálpar og enginn vill taka við keflinu og leiða starfið þrátt fyrir góða stöðu. Í nokkur ár hefur þeirri hugmynd skotið upp kollinum að réttast væri að fá Reykjanesbæ til að yfirtaka starfsemina og eignir. Áhvílandi á eignum Þroskahjálpar er innan við ein milljón króna en eignirnar eru nýlegur sendibíll og húsnæði félagsins sem er um 1.300 fermetrar og þar af vinnslusalur um 300 fermetrar og smekklega innréttað 100 fermetra skrifstofurrými, skrifstofa fyrir verkstjóra ásamt kaffistofu. Efri hæðin er óinnréttuð og u.þ.b. 200 fermetrar eru leigðir út til Sæþotufélagsins. Í vinnslusal eru tæki sem Endurvinnslan leggur starfseminni til og sér um meiriháttar viðhald á en félagið á lyftara og verkfæri. Bókhald félagsins er í afar góðu lagi og er stjórn félagsins og fjármálastjóri tilbúin að hitta fulltrúa Reykjanesbæjar og ræða frekara samstarf eða yfirtöku bæjarfélagsins á rekstrinum og eignum Þroskahjálpar á Suðurnesjum,“ segir m.a. í erindi formannsins til bæjaryfirvalda.

Public deli
Public deli

Bréf formanns Þroskahjálpar til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ

Frá því að málaflokkurinn málefni fatlaðra var fluttur til sveitarfélaga árið 2010 hefur starfsemi Þroskahjálpar á Suðurnesjum sem hagsmunasamtök fatlaðra að engu orðið ef frá er talinn rekstur Dósasels.

Ragnarsel sem var reist og rekið af foreldrum fatlaðra einstaklinga á Suðurnesjum og hýsti afar mikilvæga þjónustu fyrir fötluð börn og einstaklinga undir merki Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Starfsemin var dýrmæt einstaklingunum sem þar nutu fjölbreyttrar þjónustu og foreldrum og fjölskyldum sem fengu stuðning og aðstoð vegna fötlunar barna sinna. Sú saga verður ekki rakin hér frekar en er bæði löng og merkileg.

Með yfirtöku sveitarfélaganna á málefnum fatlaðra árið 2010 má segja að fótunum hafi verið kippt undan þjónustunni sem veitt var í Ragnarseli. Skólaselin, Hæfingastöðin og önnur einkarekin þjónusta hafa tekið yfir þá þjónustu sem Þroskahjálp hafði að mestu með höndum og var greidd af ríkinu og einhverju leyti Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þjóðfélagið breyttist og þjónusta með fatlaða var færð frá ríkinu og nær fólkinu til sveitarfélaganna.

Þroskahjálp hóf rekstur Dósasels fyrir tæplega 30 árum í húsnæði á Iðavöllum. Þar var tíu til fimmtán fötluðum einstaklingum sköpuð atvinna sem skipti þá miklu máli. Rekstur Dósasel hefur vaxið og dafnað og er enn afar mikilvæg stoð í atvinnumálum fatlaðra einstaklinga á Suðurnesjum. Reksturinn hefur verið sjálfbær, staða Þroskahjálpar farið úr skuldsettri stöðu í sterka fjárhagslega eignarstöðu með lágum skuldum og sterkum rekstri eftir að Ragnarsel var selt. Dósasel hefur þó þurft að nýta sér hlutabótaleið stjórnvalda í kórónafaraldrinum en stendur vel og er traustur vinnustaður skjólstæðinga Þroskahjálpar. Framtíðin er björt og mikið tækifæri til þess að gera Dósasel að góðu vinnumarkaðsúrræði í samstarfi við Virk og Vinnumálastofnun. Það er ljóst að síðustu tíu ár hefur upphafleg starfsemi Þroskahjálpar fjarað út og félagsþjónusta sveitarfélaganna og Hæfingastöðin yfirtekið starfsemina og upplýsingagjöfina.

Frumkvöðlarnir eru horfnir af vettvangi og þeir sem hafa tekið við eiga fæstir, ef nokkrir, tengingar við þann hóp sem áður var unnið fyrir nema vinskapur og eðlileg væntumþykja og hlýja.

Ekki hefur verið hægt að halda aðalfund síðasta árs vegna þess að ekki tekst að manna stjórn Þroskahjálpar og enginn vill taka við keflinu og leiða starfið þrátt fyrir góða stöðu. Í nokkur ár hefur þeirri hugmynd skotið upp kollinum að réttast væri að fá Reykjanesbæ til að yfirtaka starfsemina og eignir. Áhvílandi á eignum Þroskahjálpar er innan við ein milljón króna en eignirnar eru nýlegur sendibíll og húsnæði félagsins sem er um 1.300 fermetrar og þar af vinnslusalur um 300 fermetrar og smekklega innréttað 100 fermetra skrifstofurrými, skrifstofa fyrir verkstjóra ásamt kaffistofu. Efri hæðin er óinnréttuð og u.þ.b. 200 fermetrar eru leigðir út til Sæþotufélagsins. Í vinnslusal eru tæki sem Endurvinnslan leggur starfseminni til og sér um meiriháttar viðhald á en félagið á lyftara og verkfæri.

Bókhald félagsins er í afar góðu lagi og er stjórn félagsins og fjármálastjóri tilbúin að hitta fulltrúa Reykjanesbæjar og ræða frekara samstarf eða yfirtöku bæjarfélagsins á rekstrinum og eignum Þroskahjálpar á Suðurnesjum.

Fh. stjórnar Þroskahjálpar,

Ásmundur Friðriksson,
formaður.