Fréttir

Óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesi aflýst
Föstudagur 10. júní 2022 kl. 14:54

Óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesi aflýst

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum aflýsir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Landris mældist vestan við Þorbjörn á tímabilinu 28. apríl – 28. maí og var mesta hækkun um 5,5 sm. Samhliða því var aukin skjálftavirkni og mældust um 800 skjálftar á sólahring þegar mesta var. Ástæða landrissins er talin vera myndun innskots á svipuðum slóðum og innskotin þrjú sem urðu til 2020. 

Atburðurinn í maí er áframhald af óróa á Reykjanesskaga sem hófst í lok árs 2019. Mikil skjálftavirkni hefur verið síðan, nokkur innskot hafa myndast og eldgos varð í Geldingadölum 2021. Þessi atburðarrás og saga eldvirkni á Reykjanesskaga renna stoðum undir að nýtt eldgosatímabil kunni að vera að hefjast á Reykjanesskaga. Síðasta tímabil stóð yfir á árunum 800-1240 og urðu 18 gos á 440 árum. Á þessum tíma runnu hraun frá eldstöðvakerfunum Reykjanesi, Svartsengi, Krýsuvík og Brennisteinsfjöllum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Almannavarnir, ríki, sveitarfélög og fyrirtæki á svæðinu munu halda áfram vinnu við áhættumat, mótvægisaðgerðir og viðbragðsáætlanagerðir til þess að vera undirbúin löngu tímabili óróa á Reykjenesskaga. Íbúar á Reykjanesskaganum eru hvattir til þess sama.

Nánari upplýsingar um viðbrögð almennings við jarðhræringum er hægt að kynna sér hér á heimasíðu Almannavarna.   

Ef jarðskjálftavirkni eykst á ný samhliða landrisi verður almannavarnastig endurskoðað.