Fréttir

Óvissustig almannavarna: Íbúar í Vogum fylgist náið með
Séð yfir hluta byggðarinnar í Vogum. Þjónustumiðstöð og bæjarskrifstofur Voga fremstar á myndinni. VF-mynd: Hilmar Bragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 31. janúar 2020 kl. 11:04

Óvissustig almannavarna: Íbúar í Vogum fylgist náið með

Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum, segir í pistli til bæjarbúa að það sé full ástæða er fyrir íbúa í Sveitarfélaginu Vogum að fylgjast náið með þróun mála í tengslum við landris nærri Grindavík, þar sem óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir, og þar af leiðandi vera viðbúin því sem kann að gerast.

„Á fundi bæjarstjórnar nú í vikunni var ákveðið að ræða þessi mál, ekki síst í ljósi þeirrar staðreyndar hversu nálægt við erum við óróleikasvæðið. Upplýst hefur verið að ekki sé tilefni til að ætla að hætti vegna hraunflæðis steðji að Vogum, komi til þess að eldgos hefjist. Vísindamennirnir gera einna helst ráð fyrir komi til eldgoss verði það á sprungu. Reikna megi með tiltölulega stuttu gosi með frekar litlu hraunflæði. Hættan sem steðjar að okkur beinist því frekar að því hvort innviðir verði fyrir skakkaföllum, þ.e. rafmagnframleiðsla og rafmagnsdreifing; dreifing heita og kalda vatnsins og fjarskipti.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Viðbragðsáætlanir okkar þurfa því einkum að beinast að með hvaða hætti við getum tekist á við slíka röskun. Bæjarráð mun funda í næstu viku, og halda þar áfram umfjöllun um málið og skoða vandlega til hvaða ráðstafana skuli gripið. Þá er jafnframt fyrirhugaður fundur í Almannavarnarnefnd, en nefndin er sameiginleg fyrir Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga. Auk fulltrúa sveitarfélaganna eiga sæti í nefndinni lögreglustjórinn á Suðurnesjum, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Landhelgisgæslunnar, ISAVIA og Landsbjargar. Grindavíkurbær starfrækir hins vegar eigin almannavarnarnefnd. Sú staðreynd að lögreglustjórinn á Suðurnesjum situr í báðum nefndunum tryggir samfellu í störfum þeirra beggja.

Ég hvet alla til að fylgjast vel með fréttaflutningi í fjölmiðlum. Einnig er gagnlegt að fylgjast með vef Veðurstofunnar (www.vedur.is) og vef Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is). Mikilvægt er einnig að kynna sér viðbrögð komi til rýmingar.

Loks bendi ég öllum á að Rauði krossinn veitir dýrmæta þjónustu þegar náttúruvá er annars vegar. Á vef þeirra (www.redcross.is) má finna margvíslegar og gagnlegar upplýsingar, einnig er vert að benda á hjálparsímann 1717 sem alltaf er opinn og gott er að leita til ef maður finnur fyrir áhyggjum, hræðslu eða kvíða,“ segir í pistli Ásgeirs Eiríkssonar, bæjarstjóra í Vogum.