Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Óska heimildar til stækkunar á safnaðarheimili
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 14. mars 2020 kl. 07:04

Óska heimildar til stækkunar á safnaðarheimili

Njarðvíkurkirkja hefur óskað heimildar til stækkunar safnaðarheimilis í Innri-Njarðvík í samræmi við frumdrög JeES arkitekta og að heimilt verði að grenndarkynna áformin.

Í vinnslu er breyting á deiliskipulagi fyrir kirkjugarðinn í Innri-Njarðvík. Erindi Njarðvíkurkirkju er vísað til deiliskipulagsvinnunar. Í afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar segir að skipulagsmörk verði stækkuð og safnaðarheimili Innri-Njarðvíkurkirkju verði hluti af deiliskipulagi fyrir kirkjugarðinn í Innri-Njarðvík.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024