Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ölvaður með barn í bílnum á 140 km. hraða
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
miðvikudaginn 21. ágúst 2019 kl. 10:38

Ölvaður með barn í bílnum á 140 km. hraða

 Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum haft afskipti af allmörgum ökumönnum sem gerst höfðu brotlegir í umferðinni. Í bifreið eins þeirra, sem grunaður var um fíkniefnaakstur, fannst taska með kannabisefnum í. Annar, einnig grunaður um fíkniefnaakstur, reyndist vera sviptur ökuréttindum ævilangt. Sá þriðji, sem var undir sömu sökina seldur, ók ótryggðri bifreið og voru skráningarmerki fjarlægð af henni.

Þá voru á annan tug ökumanna kærðir fyrir of hraðan akstur. Einn þeirra, sem ók á 140 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund, var jafnframt grunaður um ölvunarakstur. Sá var með barn í bifreiðinni og var barnaverndarnefnd gert viðvart um málið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024