Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Ólíklegt að hælisleitandi kvarti undan myglu
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 27. október 2022 kl. 14:50

Ólíklegt að hælisleitandi kvarti undan myglu

„Þetta er allt saman ansi loðið en mér þætti ótrúlegt ef ríkið ætlaði sér ekki að fara eftir þeim reglum sem það setur sjálft varðandi heilnæmi íbúðarhúsnæðis,“ segir Magnús H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

„Þetta er allt saman ansi loðið en mér þætti ótrúlegt ef ríkið ætlaði sér ekki að fara eftir þeim reglum sem það setur sjálft varðandi heilnæmi íbúðarhúsnæðis,“ segir Magnús H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

„Eigandi húsnæðis má dvelja í myglu ef hann svo kýs en ef um leiguhúsnæði er að ræða þá þarf kvörtun að koma frá sjálfum leigjandanum. Mér finnst harla ólíklegt að hælisleitandi myndi gera það og svo er enn annað mál hvernig líta beri á svona skammtímabúsetu. Þetta er allt saman ansi loðið en mér þætti ótrúlegt ef ríkið ætlaði sér ekki að fara eftir þeim reglum sem það setur sjálft varðandi heilnæmi íbúðarhúsnæðis,“ segir Magnús H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, en eins og fram kom í gær á vf.is, hafa eigendur Festi (Víkurbraut 58 í Grindavík), en þar hefur hótelið verið rekið síðan 2012, átt í viðræðum við íslenska ríkið varðandi að leigja húsnæðið undir flóttafólk.  Einnig kom fram í fréttinni að húsnæðinu var lokað í sumar vegna myglu og framkvæmdir standa yfir.

Public deli
Public deli

Þarf ekki leyfisveitingu

Víkurfréttir höfðu samband við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES) og kom þar fram að eigendur Festis hafa ekki óskað eftir að húsnæðið verði tekið út að nýju.

Eigendur Festi töldu sig vera búna að gera nauðsynlegar lagfæringar og opnuðu hótelið aftur í sumar en þar sem þeir óskuðu ekki eftir úttekt HES, þurfti að loka hótelinu aftur og hefur engin starfsemi farið fram síðan þá.

Hvort það er tilviljun eða ekki, að búið sé að vinna í að koma húsnæðinu í stand (eftir viðræður við ríkið um útleigu vegna flóttafólks), skal ósagt látið en nokkuð athyglisverð staða er uppi því ekki þarf leyfisveitingu fyrir húsnæði fyrir móttöku hælisleitenda svo sumir gætu ætlað að hægt sé að koma fólkinu fyrir í húsnæði sem er heilsuspillandi en svo er ekki, ef HES myndi komast á snoðir um að fólk væri látið búa í Festi án þess að búið væri að taka húsnæðið út, yrði húsnæðinu lokað.

Ekki undir eftirliti varðandi aðbúnað

„Hælisleitendur á Íslandi er eini viðkvæmi hópurinn sem ekki er undir eftirliti Heilbrigðiseftirlitsins varðandi aðbúnað.  Heilbrigðiseftirlitið vinnur eftir reglugerð síðan 2002 og kannski má segja að hún sé orðin úreld því málefni hælisleitanda áttu varla við þá. Ríkið hlýtur að breyta þessum reglum m.v. núverandi stöðu þessara mála,“ segir Magnús.

Ásmundur Þorkelsson, starfsmaður HES segir að bróðurpartur íbúðarhúsnæðis á Íslandi heyri ekki undir eftirlit. „Ef einhver vill búa í myglu í eigin húsnæði þá er það einkamál viðkomandi. Hins vegar ef leigjandi húsnæðis býr við myglu, þá getur hann farið fram á úttekt á húsnæðinu og ef satt reynist, þá verður eigandinn að gera úrbætur ef hann ætlar að leigja húsnæðið út til búsetu.“

Magnús segir að húsnæði hælisleitenda þurfi að uppfylla ákvæði heilbrigðisreglugerðar.  „HES var búið að úrskurða að húsnæðið við Víkurbraut 58 sé heilsuspillandi til íbúðar.  Embættið hefur ekki fengið neinar upplýsingar um að búið sé að uppfylla þær kröfur sem gerðar voru um úrbætur. Hins vegar er reglugerðin orðin úrelt eins og áður kom fram og við vitum ekki alveg hvernig við myndum bregðast við ef ríkið myndi ákveða að hýsa hælisleitendur í Festi.“

Unnið var við hreinsun á húsnæðinu þegar blaðamaður VF mætti á staðinn. VF-myndir/Sigurbjörn.