Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ólíklegt að eldgos hafi áhrif á flutningskerfið miðað við sviðsmynd dagsins
Möguleg gossprunga sunnan við Keili. Ljósmynd: Ellert Grétarsson
Fimmtudagur 4. mars 2021 kl. 15:10

Ólíklegt að eldgos hafi áhrif á flutningskerfið miðað við sviðsmynd dagsins

„Við hjá Landsneti höfum í dag verið að meta viðbrögð út frá sviðsmyndum og áhættumati sem nú er unnið eftir. Farið hefur verið í gegnum mögulegar áhættur hverrar sviðmyndar og viðbrögð við þeim metin. Sviðsmyndirnar tengjast bæði eldgosi og stórum skjálftum og þær eru í stöðugri uppfærslu og áhættumati eftir upplýsingum frá Almannavörnum, Veðurstofunni og okkar sérfræðingum,“ segir Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets.

Niðurstöður áhættumatsins sem nú er unnið eftir er að ólíklegt sé að eldgos myndi valda truflunum á raforkuflutningi á Reykjanesi. Ef útlit er fyrir að hraun muni ógna línunni mun Landsnet hafa einhvern tíma til að grípa til aðgerða og verja línuna með gerð varnargarða eða kælingu með öflugum dælum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við höfum líka verið að vinna með sviðsmynd sem snýr að því að reka Reykjanesið sem eyju beint frá þeim virkjunum sem eru staðsettar á svæðinu ef Suðurnesjalína færi út. Það er ekki hægt í dag, en verið er að vinna að úrbótum með framleiðanda búnaðar á virkjanasvæðinu. Einnig er vinna hafin við aðgerðaáætlun vegna flutnings á varaflsvélum inn á svæðið,“ segir Steinunn jafnframt.