Fréttir

Ökumaður með allt í ólagi
Þriðjudagur 9. október 2018 kl. 10:09

Ökumaður með allt í ólagi

Það var bókstaflega ekkert í lagi hjá ökumanni sem lögreglumenn á Suðurnesjum höfðu afskipti af á sunnudagskvöld. Hann var að aka áleiðis að Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í bifreið hans voru of margir farþegar. Þá kom í ljós að ökuréttindi hans voru útrunnin. Til viðbótar þessu vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem sýnatökur gáfu til kynna fíkniefnaneyslu.
 
Annar ökumaður sem tekinn var úr umferð í nótt var grunaður um ölvun við akstur. Hann ók jafnframt sviptur ökuréttindum.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024