Fréttir

Ók á röngum vegarhelmingi á móti lögreglubifreið
Þriðjudagur 15. október 2019 kl. 09:46

Ók á röngum vegarhelmingi á móti lögreglubifreið

Betur fór en á horfðist þegar bifreið, sem ekið var á móti lögreglubifreið á Suðurnesjum um helgina, var skyndilega sveigt yfir miðju vegar svo lögreglumaðurinn sem ók hinni síðarnefndu þurfti að hemla og sveigja til hliðar til að forða árekstri. Ökumaðurinn sem ók þannig yfir á rangan vegarhelming reyndist vera erlendur ferðamaður og sagðist hann hafa verið að skyggnast um eftir húsi eða skilti. Hann greiddi 15 þúsund króna sekt á staðnum vegna þessa ógætilega aksturs.

Þá voru höfð afskipti af ökumanni með barn í bifreið sinni og sat það á púða í aftursæti, en án öryggisbeltis eða búnaðar sem áskilinn er. Tilkynning um málið var send á barnaverndarnefnd.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024