Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Nýtt íþróttahús að taka á sig mynd í Grindavík
Þriðjudagur 8. október 2019 kl. 14:37

Nýtt íþróttahús að taka á sig mynd í Grindavík

Nýtt íþróttahús er óðum að taka á sig mynd en framkvæmdir hafa staðið yfir frá því snemma á síðasta ári. Grindin er yfirverktaki framkvæmdarinnar en vonir standa til að húsið verði tekið í notkun í næsta mánuði. Þetta kemur fram í frétt á grindavik.is.

Unnið er að því að parketleggja millibygginguna en þar er gert ráð fyrir að júdó og takewondo verði með aðstöðu auk þess sem eldri borgarar verða einnig með aðstöðu þar. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Parketið fyrir stóra salinn er komið í hús en það þarf að leggja það, pússa, setja merkingar og síðan lakka yfir. Áætlað er að setja nýja áhorfendastúku í húsið og að hægt verði að nota salinn bæði sem keppnis- og æfingasal. 

Í nýja íþróttahúsinu verða fjórir búningsklefar, tveir blautklefar með sturtum og svo tveir þurrklefar þar sem ekki verða sturtur heldur aðstaða til að skipta um föt, segir á heimasíðu Grindavíkur.