Fréttir

Nýr Vörður fékk góðar móttökur í Grindavík
Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 4. október 2019 kl. 07:37

Nýr Vörður fékk góðar móttökur í Grindavík

Nýr Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkurhafnar í síðustu viku að viðstöddu fjölmenni. Um er að ræða eitt af sjö systurskipum sem norsk skipasmíðastöð smíðar fyrir íslenskar útgerðir. Vörður er í eigu Gjögurs hf sem er með heimilisfesti í Grenivík en bæði hafa Vörður og Áskell, sem eru ísfisktogarar í eigu fyrirtækisins verið gerðir út frá Grindavík til margra ára.

Um borð í Verði ÞH var um helmingur áhafnar, eða sex manns sem sáu um að koma skipinu til landsins frá Noregi. Eftir að Vörður hafði lagt að bryggju fór tollgæslan um borð, lögum samkvæmt. Á meðan gæddu gestir sér á veglegum veitingum sem í boði voru í tjaldi sem komið hafði verið upp á bryggjunni í tilefni komunnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur blessaði skipið og sagði m.a. við það tilefni að fyrirtækið Gjögur hafi verið lífæðin bæði í sjávarútveginum á Grenivík og í Grindavík. Það hafi verið sterkur hópur sem stofnað hafði Gjögur á sínum tíma.

Þá vék hann að nafni skipsins, Vörður.  Það er sá sem vakir og sá sem verndar og sá sem leggur öðrum lið. „Og ég vona og bið þess að þessi Vörður megi á sama hátt vera vörður og verndari þeirra sem á honum sigla,“ sagði Pálmi áður en hann blessaði skipið og beindi orðum sínum síðan að Þorgeiri Guðmundssyni, skipstjóra og óskaði honum og áhöfn hans velfarnaðar á komandi tímum.

Ingi Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gjögurs var að vonum ánægður með nýja skipið. Þrátt fyrir að eldri Vörður hafi ekki verið orðið gamalt skip þá sagði hann að með nýju skipi væri verið að fylgja þeirri framþróun sem hafi orðið í sjávarútvegi á Íslandi auk þess sem kröfur markaðarins kalli á ný og öflugri skip.

Texti af vef Grindavíkurbæjar.

Þorgeir Guðmundsson, skipstjóri í nýja skipinu.