Fréttir

Norsk loftrýmisgæsla á fjórum F-35 við Ísland
Hér er það F-16 sem lendir á Keflavíkurflugvelli. Norðmenn mæta með glænýjar F-35 þotur til Keflavíkurflugvallar.
Mánudagur 17. febrúar 2020 kl. 12:04

Norsk loftrýmisgæsla á fjórum F-35 við Ísland

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu norska flughersins.

Um 130 liðsmenn norska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-35 orrustuþotur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 20. til 29. febrúar. Loftrýmisgæslan verður í samræmi við loftrýmisáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland og fyrirkomulagið verður með sama hætti og áður.

Flugsveitin verður með aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok mars.

Landhelgisgæsla Íslands annast verkefnið í samvinnu við Isavia.