Fréttir

Neyðarstig almannavarna hefur áhrif á heilsugæsluna
Mánudagur 5. október 2020 kl. 09:03

Neyðarstig almannavarna hefur áhrif á heilsugæsluna

Flestir læknatímar á dagtíma á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja verða hringdir út. Þetta er gert vegna neyðarstigs almannavarna sem tók gildi á miðnætti. Fyrirkomulagið verður þar til annað verður ákveðið.

Slysa- og bráðamóttaka verður áfram opin allan sólarhringinn og læknavaktin síðdegis og um helgar verður áfram opin, en skjólstæðingar eru beðnir um að hringja á undan sér í síma 422-0500 og bóka tíma.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þjónustan gæti tekið breytingum eftir því sem á líður, þannig að rétt er að fylgjast vel með tilkynningum hér á Facebooksíðu HSS og á www.hss.is næstu daga, segir í tilkynningu.