Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Nemendur 7. bekkjar Sandgerðisskóla mótmæla hringtorgi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 5. október 2019 kl. 08:22

Nemendur 7. bekkjar Sandgerðisskóla mótmæla hringtorgi

Nemendur í 7. bekk Sandgerðisskóla hafa sent bæjaryfirvöldum í Suðurnesjabæ erindi þar sem því er mótmælt að byggt verði upp hringtorg á gatnamótum Hlíðargötu og Austurgötu í Sandgerði. Lagt er til að þeir fjármunir sem ætlaðir eru til verkefnisins verði notaðir í aðrar framkvæmdir, eins og hjólreiðastíg á milli Garðs og Sandgerðis.

Bæjarráð þakkar fyrir erindið og fagnar því að ungt fólk í Suðurnesjabæ láti málefni sveitarfélagsins sig varða. Þeim ábendingum sem koma fram í erindinu er vísað til umfjöllunar í ungmennaráði Suðurnesjabæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ákvarðanir um framkvæmdir hvers árs eru teknar í upphafi þess og var það ákvörðun bæjarstjórnar að ráðast í gerð hringtorgsins sem er aðgerð sem eykur umferðaröryggi. Þá er rétt að benda á að framkvæmdir við hringtorgið er fyrsta skrefið að því að gera svæðið við Sandgerðiskirkju snyrtilegra en það skiptir máli þar sem um það svæði fara margir gestir sem eiga erindi í sveitarfélagið. Þá er rétt að benda á að þegar er búið að samþykkja að gera göngu- og hjólreiðastíg milli Garðs og Sandgerðis og munu framkvæmdir við hann hefjast á næstu mánuðum.