Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Mjög ölvaður í hraðakstri
Þriðjudagur 18. febrúar 2020 kl. 09:17

Mjög ölvaður í hraðakstri

Ökumaður sem mældist á 138 km hraða á Reykjanesbraut í fyrradag var greinilega mjög ölvaður þegar lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu för hans. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Nokkrir til viðbótar hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 153 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. Hans bíður 210 þúsunda króna sekt og svipting ökuréttinda í einn mánuð.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024