Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Minnisvarðinn um „Hot Stuff“ færður
Laugardagur 17. apríl 2021 kl. 06:31

Minnisvarðinn um „Hot Stuff“ færður

Minnisvarði um „Hot Stuff“, bandaríska sprengjuflugvél af gerðinni B-24D Liberator, sem fórst á Fagradalsfjalli árið 1943 verður færður á næstu vikum úr hrauninu við Grindavíkurveg og upp fyrir Reykjanesbraut. Minnisvarðinn var afhjúpaður fyrir þremur árum, þegar 75 ár voru frá slysinu. Eftir að breytingar voru gerðar á Grindavíkurvegi til að auka umferðaröryggi þá varð aðgengi að minnisvarðanum mjög skert.

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að finna minnismerkinu nýjan stað og hann hefur nú verið samþykktur. Ný staðsetning er í hlíðinni upp af gatnamótum Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar. Þorsteinn Marteinsson, áhugamaður um stríðsminjar, segir í samtali við Víkurfréttir að stefnt sé að því að minnisvarðinn verði kominn á nýjan stað fyrir 3. maí næstkomandi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Minnismerkið er tilkomumikið og skartar meðal annars gríðarlega stórri eftirlíkingu af B-24 Liberator sprengjuflugvélinni úr ryðfríu stáli. Flugvélin var tekin niður af minnismerkinu á dögunum til viðhalds og hreinsunar.

Hinn 3. maí 1943, fórst bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni B-24D Liberator sem bar heitið „Hot Stuff“ á Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Flugvélin var á leið heim til Bandaríkjanna í fyrirhugaða sigurför sem fyrsta sprengjuflugvélin sem hafði náð ósködduð að fljúga 25 árásarferðir frá Bretlandi yfir meginland Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni.

Í fyrstu voru margar slíkar flugvélar skotnar niður af orrustuflugmönnum Þjóðverja og hét Bandríkjaher áhöfnum sprengjuflugvéla sem lykju 25 árásarferðum að þeir fengju að snúa heim. Áhöfn „Hot Stuff“ var sú fyrsta til að ná þessum merka árangri.

Í flugslysinu fórust fjórtán manns, þar á meðal Frank M. Andrews, hershöfðingi og æðsti maður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem var á leið til Washington til þess að leggja á ráðin um undirbúning innrásar Bandamanna á meginland Evrópu. Einn maður lifði slysið af, George A. Eisel, stélskytta, og var það í annað sinn sem hann komst lífs af úr slíku flugslysi.

Við fráfall Andrews tók Dwight D. Eisenhower, hershöfðingi, við sem æðsti maður herafla Bandaríkjanna í Evrópu og alls herafla bandamanna í Evrópu og stjórnaði innrásinni í Normandí árið eftir. Eisenhower var síðan forseti Bandaríkjanna á árunum 1953 til 1961. Andrews hershöfðingi var ötull talsmaður þess að bandaríski flugherinn yrði gerður að sjálfstæðri liðsdeild og er honum jafnan eignaður heiðurinn að því að sú skipan komst á árið 1947.

Var Andrews herflugvöllurinn í Maryland, aðsetur einkaflugvélar Bandaríkjaforseta, Air Force One, nefndur til heiðurs honum. Bandaríska herstjórnin á Íslandi nefndi nýreist íþróttahús við Hálogaland í Reykjavík Andrews Memorial Field House til heiðurs hershöfðingjanum en húsið var helsta íþróttahús höfuðborgarinnar í tvo áratugi eftir stríðið. Varnarliðið nefndi einnig samkomuhús sitt á Keflavíkurflugvelli (nú Ásbrú) Andrews Theater til heiðurs Andrews hershöfðingja.

Minnisvarðinn sem nú verður færður á nýjan stað var reistur að frumkvæði Bandaríkjamannsins Jim Lux og ættingja þeirra sem fórust, með aðstoð Þorsteins og Ólafs Marteinssona, en allir eru þeir miklir áhugamenn um flugvélar og flugsögu seinni heimstyrjaldarinnar.

Búið er að taka flugvélina af minnismerkinu til viðhalds og hreinsunar.