Fréttir

Milljarða króna stjórnvaldssekt lögð á þrotabú WOW Air
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 4. júlí 2019 kl. 14:08

Milljarða króna stjórnvaldssekt lögð á þrotabú WOW Air

Umhverfisstofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á þrotabú flugfélagsins WOW Air að upphæð 3.798.631.250 króna vegna vanrækslu flugrekanda á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2018. Um er að ræða langhæstu sekt sem Umhverfisstofnun hefur lagt á. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Ísland er aðili að viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losunarheimildir (ETS) sem miðar að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði og flugi. Meginreglan er að sá borgi sem mengar. Þeir aðilar sem losa meira en áætlað var þurfa að kaupa sér fleiri losunarheimildir. Fjárhæð stjórnvaldssektarinnar er lögbundin og samsvarar 100 evrum í íslenskum krónum vegna hverrar losunarheimildar, en eitt tonn af CO2 jafngildir einni losunarheimild. Samkvæmt vottaðri losunarskýrslu flugrekandans WOW Air var heildarlosun ársins 2018 278.125 tonn CO2.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Til viðbótar við sektina þarf einnig að standa skil eða kaupa nýjar losunarheimildir sem samsvara losun frá rekstri flugrekanda á árinu 2018.

Um ákvörðunina

Síðasti dagur til þess að gera upp losunarheimildir var 30. apríl 2019 en á þeim tímapunkti hafði engum losunarheimildum verið skilað vegna losunar WOW Air undangengið ár. Stjórnvaldssektin var lögð á í samræmi við 43. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.

Þrotabú WOW Air hefur rétt á að skjóta ákvörðuninni til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku hennar.