Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Mikilvægt að keppnissvæðin séu til sóma
Sunnudagur 5. maí 2019 kl. 16:00

Mikilvægt að keppnissvæðin séu til sóma

-Umhverfisdagur Keflavíkur næsta mánudag

Umhverfisdagur Íþrótta- og ungmennafélags Keflavíkur verður mánudaginn 6. maí. Stjórnarmenn deilda, iðkendur og aðrir velunnarar félagsins koma saman og taka til í sínu nærumhverfi.

„Það er okkar markmið að vel sé gengið um keppnissvæði og nærumhverfi félagsins, þau séu snyrtileg og okkur til sóma. Viljum við því sýna gott fordæmi með því að efna til umhverfisdags innan félagsins þar sem stjórnarmönnum og öðrum félagsmönnum gefst kostur á að koma og leggja sitt af mörkum. Viljum einnig beina þeim tilmælum til okkar stuðningsmanna og annarra velunnara sem koma og styðja við bakið á iðkendum um ganga ætíð vel um íþróttasvæðin „Hreint land fagurt land,“ sagði Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Dagskráin: 17:30-19:00.
Mæting í félagsheimilinu okkar Sunnubraut 34 kl. 17:30.
Deildir taka til í sínu umhverfi:
Aðalstjórnin tekur til í kringum Hringbraut 108
Knattspyrnudeild tekur til á Hringbrautarsvæðinu kringum knattspyrnuvöllinn
Körfuknattleiksdeild tekur til í kringum íþróttahúsið við Sunnubraut
Fimleikadeild tekur til í kringum Íþróttaakademíuna
Sunddeild tekur til í kringum Sundmiðstöðina
Badminton- og blakdeild tekur til í kringum Heiðarskóla
Taekwondodeild tekur til í kringum svæðið sitt að Iðavöllum
Skotdeild tekur til á sínu svæði í Heiði Höfnum
Endað með grillveislu í félagsheimili  um kl. 18:30 þar sem boðið er upp á hamborgara og gos.