Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Meðalsætanýting hjá WOW air aldrei hærri árið 2018
Wow vél á leið til lendingar í Keflavík. VF-mynd/pket.
Fimmtudagur 10. janúar 2019 kl. 16:19

Meðalsætanýting hjá WOW air aldrei hærri árið 2018

Árið 2018 flutti WOW air 3,5 milljónir farþega, sem er mesti farþegafjöldi í sögu félagsins, en farþegum fjölgaði um 24% frá árinu áður. Sætanýting WOW air árið 2018 var 90% en var 88% árið 2017. Þá fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 25% á milli ára. Í júlí og ágúst ferðust hátt á 900 þúsund gestir með WOW air sem eru fleiri farþegar en allt árið 2015. Á tímabilinu maí til september flugu fleiri með WOW air en allt árið 2016.

WOW air flutti 180 þúsund farþega til og frá landinu í desember eða um 16% færri farþega en í desember árið 2017. Sætanýting WOW air í desember var 81% en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 88%. Framboðnum sætiskílómetrum fækkaði um 7% í desember frá því á sama tíma í fyrra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024