Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Lyfjum stolið í Njarðvíkurhöfn
Laugardagur 18. janúar 2020 kl. 07:10

Lyfjum stolið í Njarðvíkurhöfn

Nokkrar tilkynningar um þjófnaði bárust lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni. Tilkynnt var um innbrot í skip í Njarðvíkurhöfn. Búið var að rústa öllu í stjórnklefa skipsins þegar að var komið og stela lyfjum sem þar voru geymd. Ekki er kunnugt um hvaða tegundir lyfja voru horfnar né um hve mikið magn var að ræða.
Þá var brotist inn í húsnæði og verkfærum stolið. Þau fundust svo í ruslagámi fyrir utan húsnæðið.


Enn fremur var karlmaður staðinn að því að stela dúnúlpu úr verslun í Keflavík. Eigandi verslunarinna reyndi að stöðva hann þegar ljóst var í hvaða erindagjörðum hann var mættur en maðurinn ýtti honum þá frá sér, hljóp út úr versluninni og hvarf.

Public deli
Public deli