Fréttir

Loka bílaumferð milli Grindavíkur og Ísólfsskála kl 21:00 og svæðið rýmt á miðnætti
Mynd: Lögreglan
Mánudagur 29. mars 2021 kl. 19:14

Loka bílaumferð milli Grindavíkur og Ísólfsskála kl 21:00 og svæðið rýmt á miðnætti

Lokað verður fyrir bílaumferð milli Grindavíkur og Ísólfsskála kl 21:00 í kvöld og svæðið rýmt á miðnætti. Stefnt er að því að opna aftur kl 9:00 í fyrramálið.

Í dag hefur verið opið til að fara og skoða eldgosið í Geldingadali. Mikil hálka er á pörtum gönguleiðarinnar og því eindregið mælt með hálkubroddum a.m.k. fyrir óvant göngufólk.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Töluverður vindur er á gossvæðinu og rúmlega 3ja stiga frost og því vel kalt.